Fara yfir á efnisvæði

Ástand verðmerkinga á norðanverðum Vestfjörðum.

22.09.2008

Neytendastofa hefur gert könnun á ástandi verðmerkinga á Ísafirði, Bolungarvík og Súðavík. Skoðaðar voru matvöruverslanir, bakarí, og sérvöruverslanir.

Farið var í fjórar matvöruverslanir á svæðinu. Valdar voru 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu væri í samræmi við verð í kassa. Engin matvöruverslun var með allt rétt merkt. Alls voru skoðaðar 100 vörur og voru verðmerkingar af 14% þeirra í ólagi, sjá nánar hér.

Farið var í Gamla bakaríið á Ísafirði og kannaðar annars vegar merkingar í kæli og hins vegar í borði. Þar voru verðmerkingar í góðu lagi.

Verðmerkingar voru kannaðar í 10 sérvöruverslunum bæði inni í verslunum og í sýningargluggum, þar sem það á við. Ástand verðmerkinga var almennt gott og í verslununum Netheimar, Konur og Menn, Penninn og Eymundsson, Birkir ehf, og Dótakassinn á Ísafirði voru engar athugasemdir gerðar. Fimm sérvöruverslanir eru með sýningarglugga og voru þeir allir vel merktir.

Aðilum sem Neytendastofa telur ástæðu til að gera athugasemdir við vegna ástand verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf.

Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

Neytendastofa hyggst halda verðmerkingareftirliti sínu áfram og kanna verðmerkingar á öðrum svæðum á landinu.

Ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til neytendastofa í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni www.rafraen.neytendastofa.is.

 

TIL BAKA