Fara yfir á efnisvæði

Hættuleg fjöltengi.

07.09.2004

 

Innköllun á hættulegum fjöltengjum sem seld voru í verslunum Bónuss í júlí og ágúst á þessu ári fer nú fram á vegum Arnarvíkur ehf.

Rafföng: Fjöltengi.

Vörumerki: (Vantar).

Tegundir / Gerðir: ITEM NO.: 2685 og ITEM NO.: 2687 (á strikamerkjum á umbúðum).

Málstærðir: 16A/250V~

Dreifingaraðili: Arnarvík ehf.

Þekktir söluaðilar á Íslandi: Verslanir Bónuss í júlí og ágúst á þessu ári.

Hætta: Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu hefur komist að þeirri niðurstöðu að brunahætta geti stafað af rafföngunum. Aðtaug (snúra) er alltof grönn, frágangur tenginga er slæmur auk þess sem merkingum er ábótavant. Ekki er þó vitað um slys eða bruna af völdum viðkomandi raffanga.

Lýsing á rafföngunum: Fjöltengin eru hvít, með fjórum eða fimm innstungum (tenglum), rauðum rofa og u.þ.b. 1,5m langri snúru. Á bakhlið þeirra eru merkingarnar "TÜV", "GS", "CE" og "16A/250V~". Fjöltengin voru seld í plastpoka sem festur var á blátt og gult pappaspjald (til upphengingar). Á pappaspjaldinu voru sömu merkingar og á bakhlið fjöltengjanna auk merkinganna "N", "S" og "Fi" í litlum hringjum, þar var einnig að finna álímt strikamerki með merkingunni "ITEM NO.: 2685" (fjöltengi með fjórum innstungum) eða "ITEM NO.: 2687" (fjöltengi með fimm innstungum). Sjá nánar á myndum hér fyrir neðan.

Hvað eiga eigendur slíkra fjöltengja að gera ?: Eigendur slíkra fjöltengja eiga að sjálfsögðu að hætta notkun þeirra þegar í stað og snúa sér til viðkomandi söluaðila (Bónus).

TIL BAKA