Fara yfir á efnisvæði

Ársskýrsla markaðseftirlits raffanga fyrir árið 2007

23.04.2008

Neytendastofa annast opinbera markaðsgæslu raffanga. Hún fylgist með rafföngum á markaði, aflar á skipulegan hátt upplýsinga um þau og tekur við ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum.
Faggiltar skoðunarstofur annast í umboði Neytendastofu framkvæmd skoðana á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók Neytendastofu.
Komin er út ársskýrsla markaðseftirlits raffanga fyrir árið 2007. Þar kemur m.a. fram að farið var í 330 heimsóknir til söluaðila raffanga á síðasta ári og 15.188 rafföng „skimuð" í þessum heimsóknum.
Frá árinu 2003 hefur Aðalskoðun hf annast þessar skoðanir fyrir hönd Neytendastofu og á eftirfarandi hlekk má nálgast ársskýrslu hennar fyrir árið 2007.

TIL BAKA