Ákvarðanir Neytendastofu staðfestar
27.09.2011
Með úrskurðum 16/2011 og 17/2011 hefur áfrýjunarnefnd neytendamála staðfest ákvarðanir Neytendastofu. Með ákvörðununum voru lagðar sektir á fyrirtækin Cosmo ehf. og Skóarann í Kringlunni ehf. fyrir að fara ekki að tilmælum Neytendastofu þess efnis að koma verðmerkingum sínum í viðunandi horf.
Úrskurðina má lesa í heild sinni hér.