Fara yfir á efnisvæði

Ástand verðmerkinga á Árborgarsvæðinu

09.09.2008

Neytendastofa hefur gert könnun á ástandi verðmerkinga á Selfossi, í Hveragerði og Þorlákshöfn. Skoðaðar voru matvöruverslanir, bakarí, fiskbúðir og sérvöruverslanir.

Farið var í fimm matvöruverslanir á svæðinu. Valdar voru 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu væri í samræmi við verð í kassa. Í verslunum Bónus á Selfossi og Kjarval í Þorlákshöfn gerði Neytendastofa engar athugasemdir við verðmerkingar. Alls voru skoðaðar 125 vörur og voru verðmerkingar af 8% þeirra í ólagi, sjá nánar hér.

Farið var í þrjú bakarí og reyndust verðmerkingar þar mismunandi. Kannaðar voru merkingar í kæli annars vegar og borði hins vegar. Í Guðnabakaríi voru allar verðmerkingar í góðu lagi en í Vilberg og Hverabakaríi þarf að bæta verðmerkingar.

Ein fiskbúð er á svæðinu og voru verðmerkingar þar í góðu lagi.

Verðmerkingar voru kannaðar í 14 sérvöruverslanir bæði inni í verslunum og í sýningargluggum. Ástand verðmerkinga í gluggum verslana var í flestum tilfellum í góðu lagi, þó voru dæmi þess að allt væri óverðmerkt.

Aðilum sem Neytendastofa telur ástæðu til að gera athugasemdir við vegna ástand verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

Neytendastofa hyggst halda verðmerkingareftirliti sínu áfram og kanna verðmerkingar á öðrum svæðum á landinu.

Ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til neytendastofa í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni rafraen.neytendastofa.is.

 

TIL BAKA