Ástand verðmerkinga á Selfossi og í Hveragerði
Neytendastofa gerði könnun á ástandi verðmerkinga á Selfossi og í Hveragerði. Skoðaðar voru matvöruverslanir, bakarí, fiskbúðir og sérvöruverslanir
Farið var í fimm matvöruverslanir. Í samræmi við fyrri kannanir voru valdar 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking í hillu væri í samræmi við verð á kassa. Alls voru því skoðaðar 125 vörur og voru verðmerkingar í 7,2% tilfella í ólagi, sem er svipað og í síðustu könnun. Engar athugasemdir voru gerðar við verðmerkingar verslunum Bónuss, Selfossi, og Nóatúns, Selfossi,
Í bakaríum voru kannaðar merkingar í kæli annars vegar og borði hins vegar. Í Guðnabakaríi og Vilbergsbakaríi voru verðmerkingar í lagi en í Hverabakaríi var verðmerkingum í borði mjög ábótavant.
Fiskbúð Suðurlands var með allar merkingar í góðu lagi eins og í fyrri könnun
Verðmerkingar voru kannaðar í 28 sérvöruverslunum, bæði inni í verslunum og í sýningargluggum. Gerð var athugasemd í tveimur verslunum.
Ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til Neytendastofu í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni www.rafraen.neytendastofa.is.