Verum á verði og gerum verðsamanburð!
Könnun Neytendastofu á verði hjólbarða eftir stærðum á hjólbarðaverkstæðum og hjá umboðssölum fór fram 7.-11. október sl. Ekkert mat er lagt á gæði hjólbarða. Í úrtaki Neytendastofu eru upplýsingar um verð hjá 28 fyrirtækjum. Eingöngu var kannað lægsta verð hjólbarða eftir stærð, óháð tegund.
Stærðir sem kannaðar voru eru 14“, 15“, 16“ og 17“ hjólbarðar fyrir fólksbíla. Niðurstöður um verð hjá öllum fyrirtækjunum sem kannað var hjá eftir stærðum og vörumerkjum má sjá hér.
Í ljós kemur að mikill verðmunur er á hjólbörðum í hverjum stærðarflokki . Mestur munur var á 17 tommu heilsárs hjólbörðum eða 146%. Tekið skal fram að margir af þeim aðilum sem tóku þátt eiga von á nýrri sendingu af hjólbörðum og geta verðin þá breyst. Neytendastofa vill auk þess benda á gæða –og verðkönnun FÍB, sjá hér og jafnframt hefur ASÍ gert verðkönnun á þjónustu hjólbarðaverkstæða, sjá hér.
Neytendastofa bendir á að ferli við val og kaup á hjólbörðum getur reynst neytendum flókið en kannanir eru til þess fallnar að veita þeim betri yfirsýn um framboð og verð á markaðnum.
Í neðangreindri töflu er að finna yfirlit um mesta verðmun sem kom fram milli söluaðila. Verðin í töflunni eru staðgreiðsluverð og þar sést loka verð á einu dekki þar sem tekið hefur verið tillit til afsláttar sem í boði var þegar könnunin var gerð.
14 tommu dekk |
||||
Fyrirtæki |
Afsláttarkjör |
Verð 1 dekk m. afslætti |
Vörumerki |
Verðm. í % |
Heilsársdekk stærð 175/65R14 | ||||
Dekkjahöllin |
25% staðgr.afsl. |
8.195 kr. |
WinterClaw |
82% |
Nicolai |
Fast verð |
14.914 kr. |
Dayton | |
Heilsársdekk stærð 185/65R14 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. . |
8.380 kr. |
WinterClaw |
79% |
Betra grip |
10% afsl. |
14.972 kr. |
Dayton | |
Nagladekk stærð 175/65R14 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. . |
10.166 kr. |
WinterClaw |
49% |
Betra grip |
10% afsl. ótímab. |
15.104 kr. |
Dayton | |
Nagladekk stærð 185/65R14 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. |
10.351 kr. |
WinterClaw |
93% |
Max1 |
20% afsl. til 16. okt. |
19.980 kr. |
Pirelli | |
15 tommu dekk |
||||
Fyrirtæki |
Afsláttarkjör |
Verð 1 ddekk . afslætti |
Vörumerki |
Verðm. í % |
Heilsársdekk stærð 185/65R15 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. |
9.480 kr. |
WinterClaw |
79% |
|
|
|
| |
Nicolai |
Fast verð |
16.982 kr. |
Dayton | |
Heilsársdekk stærð 195/65R15 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. |
9.741 kr. |
WinterClaw |
93% |
|
|
|
| |
Nicolai |
Fast verð |
18.817 kr. |
Dayton | |
Nagladekk stærð 185/65R15 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. |
11.451 kr. |
WinterClaw |
48% |
Betra grip |
10% afsl. |
16.965 kr. |
Dayton | |
Nagladekk stærð 195/65R15 | ||||
Dekkjahöllin |
25% afsl. |
11.712 kr. |
WinterClaw |
82% |
Max1 |
20% afsl. |
21.322 kr. |
Nokian | |
16 tommu dekk |
||||
Fyrirtæki |
Afsláttarkjör |
Verð 1 dekk m. afslætti |
Vörumerki |
Verðm. í % |
Heilsársdekk stærð 205/55R16 | ||||
Dekkjahöllin |
25% staðgr.afsl. |
11.847 kr. |
WinterClaw |
118% |
Nicolai |
Fast verð |
25.816 kr. |
Dayton | |
Nagladekk stærð 205/55R16 | ||||
Dekkjahöllin |
25% staðgr.afsl.. |
13.818 kr. |
WinterClaw |
86% |
Max1 |
20% afsl. |
25.640 kr. |
Pirelli | |
Fyrirtæki |
Afsláttarkjör |
Verð pr. dekk m/afsl. |
Vörumerki |
Verðm. í % |
Heilsársdekk stærð 225/45R17 | ||||
Dekkjahöllin |
25% staðgr.afsl. |
16.487 kr. |
WinterClaw |
146% |
Betra grip |
10% afsl. |
40.583 kr. |
Bridgestone | |
Nagladekk stærð 225/45R17 | ||||
Gúmmívinnustofan SP Dekk |
15% afsl. |
17.765 kr. |
Iceblazer |
135% |
Max1 |
20% afsl. |
41.661 kr. |
Pirelli |