Fara yfir á efnisvæði

Nova sektað

13.05.2011

Fréttamynd

Neytendastofa hefur lagt 500.000 kr stjórnvaldssekt á Nova fyrir að fara ekki eftir ákvörðun stofnunarinnar.  Í nóvember 2009 bannaði Neytendastofa Nova að nota fullyrðinguna „0 kr. Nova í Nova“ þegar auglýst væri símaþjónusta í áskrift. Stofnunin taldi að sannanlega væru símtöl innan símkerfis Nova á 0 kr. þegar viðskiptavinurinn væri með svokallað frelsi, en þeir viðskiptavinir sem væru í áskrift þyrftu alltaf að borga mánaðargjald og því gætu símtölin ekki verið á 0 kr. Í fæstum tilfellum er gerður greinarmunur á því í auglýsingunum hvort um sé að ræða frelsi eða áskrift.  Því þarf Nova að gæta þess þegar notast er við fullyrðinguna að fram komi í auglýsingunni hvað greiða þurfi í mánaðargjald ef viðskiptavinur er í áskrift.

Nova breytti auglýsingunum í kjölfar ákvörðunarinnar en þrátt fyrir það birtust nokkrar auglýsingar þar sem upplýsingar um mánaðargjald komu ekki fram. Nova braut því gegn ákvörðun Neytendastofu og hefur nú verið gert að greiða stjórnvaldssekt fyrir brotin.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA