Fara yfir á efnisvæði

Orkusparandi perur taka við af þeim gömlu

01.09.2011

Fréttamynd

Neytendastofa vill vekja athygli á að frá og með 1. september er framleiðendum ljósapera ekki lengur heimilt að selja og dreifa glærum 60 W glóperum til heildsala og endursöluaðila. Ástæða þess eru gildistaka á nýjum visthönnunarkröfum fyrir ljósaperur, en markmiðið er að spara raforku í ríkjum EES.

Neytendastofa fer með markaðseftirlit með ljósaperum og ber því að framfylgja þessum  nýju reglum. Verslunum er þó leyfilegt að selja þær 60 W glæru glóperur sem fluttar hafa verið inn til Íslands fyrir 1. september 2011 og hreinsa lager af eldri gerðum.  Markaður fyrir ljósaperur hefur verið að breytast á eftirfarandi hátt:

•    Allar mattar glóperur óháð W styrkleika  voru bannaðar frá 1. september 2009
•    75 W glærar glóperur og sterkari voru bannaðar frá 1. september 2010
•    60 W glærar glóperur eru bannaðar frá og með 1. september 2011
•    15, 25 og 40 W glærar glóperur verða bannaðar frá og með 1. september 2012

Í staðinn fyrir gömlu glóperurnar koma  orkusparandi perur eins og sparperur og LED perur en einnig eru nú til halógen eco perur sem líta út eins og hefðbundnar glóperur. Umbúðir á að merkja með upplýsingum um lúmen (lm) auk upplýsinga um vött (W). Lúmen sýnir fram á hversu mikil birta fæst af perunni en vött (W) sýna fram á raforkunotkun. Algengt er að raforkunotkun sé allt að 80% minni með sparperum. Samkvæmt nýjum reglum má aðeins nota orðið „orkusparandi“ (e. energy saver) fyrir perur sem hafa bestu orkunýtingu og eru merktar í orkunýtniflokki A.

Aðrar merkingar sem skulu koma fram á vörunni eru meðal annars í hvaða orkunýtniflokki frá A til G ljósaperan tilheyrir og líftími perunnar.

Neytendastofa hvetur neytendur til að kynna sér merkingar og leiðbeiningar sem nú er skylt  að setja á umbúðir sem eiga að auðvelda neytendum val á ljósaperum. Auk þess hvetur stofnunin innflytjendur og seljendur á þessum vörum til að kynna vel fyrir neytendum þær breytingar sem nú eiga sér stað á markaði fyrir ljósaperur.

Dæmi um merkingar á umbúðum má sjá á myndinni

Nánar má lesa um reglurnar í reglugerð nr.  580/2011, 579/2011 og 578/2011.

Unnt er að koma ábendingum á framfæri á vef Neytendastofu.

TIL BAKA