Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfestir ákvörðun Neytendastofu
05.06.2007
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að Skjárinn miðlar hafi með skráningu og notkun lénsins sirkus.is brotið gegn ákvæðum 5. og 12. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.