Fara yfir á efnisvæði

Fræðslufundur um forpökkun á vörum 15. september 2011

06.09.2011

Á vegum Neytendastofu fer fram fræðslufundur um forpökkun og magntilgreiningu á vörum þann 15. september n.k. í Reykjavík.

Á fundinum munu tveir erlendir fyrirlesarar kynna evrópskar reglur sem gilda um meðaltalsvigtun vöru í forpakkaðar umbúðir og notkun e-merkisins sem tryggir gagnkvæma viðurkenningu á magninnihaldi vöru í viðskiptum innan EES svæðisins.

Á fundinum verður einnig gerð grein fyrir ákvæðum í gildandi reglugerðum sem eru undir eftirliti annars vegar Neytendastofu og hins vegar Matvælastofnunar. Noti fyrirtæki e-merki og meðaltalsreglu við pökkun á vöru eykur það hagkvæmni í rekstri og betri hagnýtingu á hráefni enda þurfa þau þá ekki lengur að nota yfirvigt til að tryggja kaupendum rétt magn í forpökkuðum vörum.

Hér má finna dagskrá fundarins.

Fundurinn er ætlaður aðilum í atvinnulífi s.s. iðnfyrirtækjum, verslunum, fulltrúum stórnvalda og annarra sem vilja kynna sér gildandi reglur um magntilgreiningu á vörum. Erindi verða bæði á íslensku og ensku. Gert er ráð fyrir fyrirspurnum og umræðum.

Ekkert þátttökugjald en tilkynna skal þátttöku með pósti til  postur@neytendastofa.is.

TIL BAKA