Fara yfir á efnisvæði

Námskeið vigtarmanna

30.01.2009

Fréttamynd

Námskeið til löggildingar og endurlöggildingar vigtarmanna voru haldin í húsnæði Neytendastofu í Borgartúni 21 í Reykjavík dagana 19. -21. og 26. janúar síðastliðinn. Mjög góð mæting var á bæði námskeiðin en þó einkum á endurmenntunarnámskeiðið sem var næstum því fullsetið. Á almenna námskeiðið mættu 17 og 23 á endurmenntunarnámskeiðið. Einn féll á almenna námskeiðinu en enginn á endurmenntunarnámskeiðinu.
Námskeiðin eru haldin þrisvar sinnum á ári og verða næstu námskeið haldin í maí 2009.

Á heimasíðu Neytendastofu er hægt að fá nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningar og umsóknareyðublöð. Sjá hér.

TIL BAKA