Fara yfir á efnisvæði

Blátt áfram varar við bláu hjarta

16.05.2012

Fréttamynd

Neytendastofu vekur athygli á tilkynningu frá samtökunum Blátt áfram. En þar kemur fram að í  landssöfnun Blátt áfram sem fram fór dagana 4.- 6. maí voru seldar bláar hjartalagaðar lyklakippur. Því miður hefur komið í ljós að lyklakippurnar geta verið hættulegar ungum börnum og harma samtökin það mjög. Hættan felst í því að hægt er að taka lyklakippuna í sundur með auðveldum hætti en það getur skapað hættu fyrir börn á aldrinum 0 - 3 ára þar sem lyklakippan inniheldur smáhluti svo sem lítil batterí og ljós.
 
Tilgangur Blátt áfram samtakanna er að vinna að forvörnum fyrir börn og því harma samtökin mjög að þeim hafi verið seld vara sem getur reynst börnum hættuleg. Blátt áfram hvetur því styrktaraðila sína til að tryggja að lyklakippan komist ekki í hendur barna eða skila þeim aftur til samtakanna.
 
Blátt áfram og Margt smátt ehf. hafa unnið náið með Neytendastofu í máli þessu og aflað sér upplýsinga um hvernig megi koma í veg fyrir að svona gerist aftur. Við nánari skoðun hefur komið í ljós að varan getur skapað hættu fyrir ung börn. Framangreindir ábyrgðaraðilar harma það mjög.
 
Um leið og Blátt áfram þakkar öllum þeim sem styrktu þau í landssöfnuninni heita samtökin því að í framtíðinni munu þau ganga úr skugga um að vörur sem bera nafn samtakanna uppfylli allar öryggiskröfur.

 

TIL BAKA