Fara yfir á efnisvæði

Námskeiðum til löggildingar- og til endurlöggildingar vigtarmanna er nýlokið

01.02.2008

Fréttamynd

Námskeiði til löggildingar vigtarmanna ásamt námskeiði  til endurlöggildingar vigtarmanna voru haldin í janúar sl. Mjög góð mæting var á bæði námskeiðin og mættu 23 á almenna námskeiðið og 24 á endurmenntunar námskeiðið og voru þau því sem næst fullsetin.

Námskeiðin eru haldin þrisvar sinnum á ári og verða næstu námskeið haldin í maí nk.

Á heimasíðu Neytendastofu er hægt að fá nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningar og umsóknareyðublöð.

Sjá nánar hér

TIL BAKA