Fara yfir á efnisvæði

Vigtarmannanámskeið í janúar 2011

04.01.2011

Fréttamynd

Námskeiðum til löggildingar vigtarmanna og til endurlöggildingar vigtarmanna verða haldin í Reykjavík í 17.-19. janúar og 24. janúar næstkomandi hvort um sig. Enn eru fáein sæti laus á almenna námskeiðið. Farið er yfir atriði sem heyra undir Neytendastofa á borð við lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, reglur um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna, reglugerð um löggildingarskyldu mælitækja í notkun, reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með ósjálfvirkum vogum, reglugerð um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja, reglugerð um ósjálfvirkar vogir, reglugerð um mælieiningar, reglugerð um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22 um mælitæki. Þá er líka farið yfir efni sem tengt er vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur starfa m.a. hjá Neytendastofu og Fiskistofu. Námskeiðin eru haldin í húsnæði Neytendastofu í Borgartúni 21.

Á vefsíðu Neytendastofu er hægt að fá nánari upplýsingar á borð við inntökuskilyrði á námskeiðin, verð, tímasetningu og greiðslufyrirkomulag. Skráning er rafræn af forsíðunni undir RAFRÆN NEYTENDASTOFA og þar undir Skráning á námskeið

TIL BAKA