Ákvörðun Neytendastofu staðfest
08.11.2010
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði í máli nr. 8/2010 staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 27/2010. Með ákvörðuninni var Pólýhúðun ehf. ekki bönnuð notkun á lénunum dufthudun.is og dufthúðun.is þar sem Neytendastofa taldi orðið „dufthúðun“ svo almennt að Dufthúðun ehf. gæti ekki notið einkaréttar á því.
Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.