Fara yfir á efnisvæði

Áfrýjunarnefnd neytendamála vísar frá kæru Hársnyrtistofunnar Andromedu

06.10.2009

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurðum sínum nr. 8/2009 vísað frá kæru Hársnyrtistofunnar Andromedu á ákvörðun Neytendastofu nr. 11/2009. 

Neytendastofa hafði í ákvörðun nr. 11/2009 sektað Hársnyrtistofuna Andromedu fyrir að hafa ekki sýnilegan verðlista yfir framboðna þjónustu til neytenda. Hársnyrtistofan undi ekki niðurstöðunni og áfrýjaði henni. Áfrýjunarnefnd vísaði kæru hennar frá nefndinni þar sem kæran barst ekki innan lögboðins fjögurra vikna kærufrests.

Sjá úrskurð áfrýjunarnefndar neytendamála nr. 8/2009

TIL BAKA