Fara yfir á efnisvæði

Vigtarmannanámskeið í október 2011

20.10.2011

Námskeið til löggildingar vigtarmanna var haldið í Reykjavík fyrstu dagana í október. Átta þátttakendur voru á námskeiðinu.

Farið er yfir lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, reglur um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna og reglugerð um löggildingarskyldu mælitækja í notkun. Jafnframt er farið yfir reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með ósjálfvirkum vogum, reglugerð um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja og reglugerð um ósjálfvirkar vogir, reglugerð um mælieiningar og að auki reglugerð um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22 um mælitæki. Áhersla er einnig lögð á lög og reglugerðir um efni sem tengist vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur koma frá Neytendastofu, Fiskistofu og Löggildingu ehf. Námskeiðið var haldið í húsnæði Neytendastofu í Borgartúni 21.

Grunnámskeið hafa verið haldin þrisvar á ári og verður næsta löggildingarnámskeið haldið í janúar 2012. Einnig verður haldið endurmenntunarnámskeið á svipuðum tíma en það verður síðasta endurmenntunarnámskeiðið í bili. En endurmenntunarnámskeið verður ekki haldið aftur fyrr en árið 2016.

Á heimasíðu stofnunarinnar er hægt að fá upplýsingar um inntökuskilyrði á námskeiðin og fleira er þeim tengist eins og tímasetningar næsta námskeiðs og þar er einnig hægt að innrita sig á námskeið. Þar má líka finna og hala niður hluta af námsefninu sem farið er yfir.

 

TIL BAKA