Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar hárgreiðslu- og snyrtistofur

09.06.2011

Verðmerkingareftirlit Neytendastofu kannað ástand verðmerkinga hjá hársnyrtistofum og snyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu. Margar af þeim stofum sem gerðar voru athugasemdir við bættu merkingar sínar en nokkrar þeirra fóru hvorki að tilmælum Neytendastofu um verðmerkingar né gáfu skýringar á ástandi þeirra. Því hefur Neytendastofa nú sektað þær fyrir ófullnægjandi verðmerkingar.

Hársnyrtistofum og snyrtistofum ber skylda til að hafa sýnilegan verðlista yfir a.m.k. algengustu þjónustuþætti og að verðmerkja allar söluvörur sínar.

Á hárgreiðslustofunni Team, hárgreiðslustofunni Salon VEH Húsi verslunarinnar, Prima Donna hárgreiðslustofu og snyrtistofunni Carita var ástand verðmerkinga ýmist á þann veg að þar vantaði sýnilegan verðlista yfir a.m.k. algengustu þjónustuþætti eða að verðmerkingum á söluvörum var ábótavant. Á Amadeus hársnyrtistofu var báðum atriðum ábótavant.

Stofunum var öllum gefinn kostur á að koma verðmerkingum sínum í lag en þar sem þær fóru ekki að tilmælum Neytendastofu hefur stofnunin lagt á þær stjórnvaldssektir ýmist að fjárhæð 50.000 kr. eða 100.000 kr.

Ákvarðanirnar eru nr. 18/2011, 19/2011, 20/2011, 21/2011 og 22/2011 og má lesa hér.

TIL BAKA