Fara yfir á efnisvæði

Brimborg innkallar Volvo

26.03.2012

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg á Íslandi varðandi innköllun á Volvo bifreiðum af gerðinni S60, V60, XC60, S80, V70, XC70 vegna rafmagnsvíra.  Sú hætta er fyrir hendi að rafmagnsvírar sem eru undir framsætum séu of slakir og geti þ.a.l. "krækst" í magnara undir sætunum þegar þau eru færð fram og aftur. Aftengist vírarnir getur komið til þess að loftpúðar virki ekki eins og til er ætlast. Einungis er um að ræða bifreiðar frá árinu 2012 og hefur Brimborg haft samband við hlutaðeigandi bifreiðareigendur og hafið viðgerð.

Hægt er að sjá tilkynninguna frá Rapex hér.

TIL BAKA