Fara yfir á efnisvæði

Skortur á upplýsingagjöf Kilroy til ferðamanna

20.12.2024

Neytendastofa gerði athugasemdir við upplýsingagjöf Kilroy Iceland til ferðamanna bæði fyrir samningsgerð og í samningnum sjálfum.

Að mati stofnunarinnar hafði Kilroy veitt ferðamönnum rangar upplýsingar um rétt þeirra til að afpanta pakkaferð vegna verulegra breytinga og um ábyrgð Kilroy á breytingum á ferðinni. Taldi stofnunin að skipuleggjendum væri ekki heimilt að skilgreina upp á sitt einsdæmi hvað teljist til „óverulegra breytinga“ á pakkaferð eins og Kilroy geri. Meta þurfi í hverju tilviki fyrir sig hvað teljist vera óveruleg breyting á samningi um pakkaferð. Þá geti Kilroy ekki kveðið á um það að félagið beri ekki ábyrgð á breytingum sem flugfélag kunni að gera enda er ábyrgð skipuleggjenda pakkaferða á framkvæmd þeirra rík gagnvart ferðamönnum.

Kilroy hafði auk þess ekki veitt ferðamönnum staðlaðar upplýsingar sem ber að veita ferðamönnum fyrir samningsgerð. Taldi stofnunin að skipuleggjendum beri að birta stöðluðu upplýsingarnar eins og þær birtast í reglugerð.

Að lokum hafi félagið í samningum um pakkaferð ekki veitt neytendum upplýsingar um þann aðila sem fer með framkvæmd reglna um vernd gegn ógjaldfærni, sem er nú Ferðatryggingasjóður, eins og skylt er.

Upprunalegt erindi stofnunarinnar varðaði þó fleiri atriði sem betur hefðu mátt fyrir í upplýsingagjöf félagsins. Við meðferð málsins gerði félagið ýmsar fullnægjandi breytingar á skilmálum sínum sem Neytendastofa tók tillit til við ákvörðun um brot félagsins.

Ákvörðunina í heild sinni má lesa hér.


TIL BAKA