Húsgagnahöllin sektuð vegna Tax Free auglýsinga.
Neytendastofa hefur sektað Húsgagnahöllina vegna auglýsinga um Tax Free afslætti félagsins. Var um að ræða auglýsingar þar sem prósentuhlutfall verðlækkunar var ekki kynnt neytendum. Auglýsingarnar voru birtar á Facebook síðu félagsins og Rúv.
Í ákvörðuninni er þess getið að ekki sé nægilegt að tilgreina aðeins að um Tax Free afslátt sé að ræða, heldur þurfi að greina frá upplýsingum um prósentuhlutfall afsláttarins enda kunna mismunandi vörur og þjónusta að bera mismunandi virðisaukaskatt. Þá sé ekki hægt að gera kröfu til þess að neytendur veiti sérstaka athygli hver afreikniprósenta virðisaukaskatts er á hverjum tíma fyrir hvert skattþrep. Auglýsingarnar hafi því verið ósanngjarnar gagnvart neytendum og feli í sér villandi viðskiptahætti.
Sektaði stofnunin Húsgagnahöllina um 200.000 kr., m.a. út frá fyrri sektarákvörðunum fyrir sambærileg brot.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér