Sekt vegna verðmerkinga
15.07.2025
Neytendastofa gerði skoðun á ástandi verðmerkinga hjá 58 seljendum og þjónustuveitendum í Reykjanesbæ. Í verðmerkingareftirliti er skoðað hvort söluvörur eru verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Einnig er skoðað hvort að verðskrá yfir framboðna þjónustu sé sýnileg.
Í verðmerkingareftirliti Neytendastofu gerðu starfsmenn stofnunarinnar athugasemdir við verðmerkingar í 10 verslununum þar sem ástand verðmerkinga var ábótavant og hvatti stofnunin til úrbóta. Skoðuninni var að lokum fylgt eftir með annarri heimsókn þar sem niðurstaðan var að einungis eitt fyrirtæki hafði ekki ekki gert fullnægjandi úrbætur á verðmerkingum. Neytendastofa hefur nú lagt sekt á það fyrirtæki.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.