Fara yfir á efnisvæði

Norðursigling sektuð fyrir villandi auglýsingar og markaðssetningu

26.02.2026

Neytendastofu barst kvörtun frá Gentle Gians-Hvalaferðum ehf. vegna auglýsinga og markaðssetningar Norðursiglingar ehf. Auglýsingarnar lutu að fullyrðingum um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir. Þá notaðist Norðursigling einnig við myndmerki sem var í líkingu græns laufblaðs.

Norðursigling hafnaði því að auglýsingar og markaðssetning félagsins fæli í sér villandi eða óréttmæta viðskiptahætti og vísaði til þess að í boði væru hvalaskoðunarferðir á rafmagnsbát og svokölluðum hybrid bát sem væru umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnsihlutlausar.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar Norðursiglingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnishlutlausar hvalaskoðunarferðir væru ósannaðar og því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum. Leit Neytendastofa til þess að notkun Norðursiglingar á fullyrðingum með skírskotun til umhverfisins væri víðtæk og áberandi. Það var álit Neytendastofu að fullyrðingar Norðursiglingar væru almennar og óljósar og ekki studdar viðhlítandi gögnum. Fullyrðingarnar gefi neytendum þannig ranglega til kynna að öll starfsemi Norðursiglingar væri umhverfisvæn eða hafi í það minnsta hlutlaus áhrif á umhverfið og væru þannig líklegar til að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti við félagið. Fullyrðingarnar væru því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum og keppinautum félagsins.

Með ákvörðun Neytendastofu var Norðursiglingu bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir og myndmerki í líkingu græns laufblaðs. Taldi stofnunin einnig tilefni til að beita stjórnvaldssekt í málinu og nam sektarfjárhæðin 1.500.000 kr.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA