Fara yfir á efnisvæði

Stjórnvaldssekt lögð á Bensínorkuna

23.06.2010

Fréttamynd

Neytendastofu barst kvörtun frá Olíuverslun Íslands vegna fullyrðinga í auglýsingum Bensínorkunnar sem rekur bensínstöðvar Orkunnar. Auglýsingarnar voru m.a. birtar í tilefni Ofurdags Orkunnar og kom þar fram að Orkan væri með afslátt af ódýrasta eldsneytinu á Íslandi. Olíuverslun Íslands taldi að um ósanna fullyrðingu væri að ræða og krafðist þess að auglýsingarnar væru bannaðar.

Að mati Neytendastofu gáfu auglýsingar Orkunnar neytendum til kynna að fyrirtækið væri með ódýrasta eldsneytið á Íslandi. Samkvæmt gögnum málsins, m.a. frá verðkönnunarþjónustunni GSMbensín, var ljóst að Orkan var ekki ávallt með ódýrasta eldsneytið á Íslandi á því tímabili sem um var að ræða. Neytendastofa telur að gera verði ríkar kröfur til fyrirtækja sem með auglýsingum sínum vilja höfða til neytenda á grundvelli verðsamanburðar. Því voru auglýsingar Orkunnar bannaðar þar sem fyrirtækið gat ekki sannað fullyrðingu sína um ódýrasta eldsneytið á Íslandi.

Var Bensínorkunni auk þess gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 600.000 þar sem um ítrekað brot var að ræða.

Sjá ákvörðun nr. 33/2010


 

TIL BAKA