Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun varðandi umbúðir

06.11.2012

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun í máli vegna kvörtunar Eðalvara yfir útliti umbúða Eggerts Kristjánssonar utan um Rautt kóreskt ginseng.

Kvörtunin snéri að því að umbúðir Eggerts Kristjánssonar væru eftirlíking af umbúðum Eðalvara utan um Rautt eðal ginseng. Forsaga málsins er sú að með ákvörðun Neytendastofu nr. 8/2007 var Eggerti Kristjánssyni bannað að nota þáverandi umbúðir sínar utan um ginseng þar sem þær þóttu of líkar umbúðum Eðalvara. Í kjölfar ákvörðunarinnar breytti Eggert Kristjánsson útliti umbúðanna. Eðalvörur töldu breytinguna ekki vera nægjanlega og enn vera líkindi og hættu á ruglingi á milli umbúðanna.

Með ákvörðun Neytendastofu nr. 44/2012 komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til aðgerða. Að virtu heildarmati á umbúðunum, þ.e. letri, litum, texta og öðrum einkennum, var það mat stofnunarinnar að umbúðirnar væru það ólíkar að ekki væri hætta á að neytendur rugluðust á þeim. 

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA