Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu nr. 25/2008

26.08.2008

Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að Neyðarþjónustan ehf. hafi brotið gegn ákvæðum 5. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins með því að kasta rýrð á vörur frá ASSA í bréfi til viðskiptamanna. Þá hefur Neyðarþjónustan brotið gegn ákvæðum 6. gr. sömu laga með ósönnuðum fullyrðingum í kynningarbréfi og á vefsíðu fyrirtækisins og með því að bera saman verð á ósamanburðarhæfum vörum frá MU og ASSA.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA