Fara yfir á efnisvæði

Skýrsla um ástand raflagna og rafbúnaðar á tjaldstæðum

18.05.2006

Á síðasta ári fékk Neytendastofa rökstuddar ábendingar um að ástand raflagna á tjaldstæðum og öðrum stöðum þar sem möguleiki er að tengja hjólhýsi og húsbíla við rafmagn kynni að vera ábótavant. Af þeim sökum ákvað stofnunin að kanna raflagnir og rafbúnað sem settur hefur verið upp á tjaldstæðum.

Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að þær athugasemdir sem koma fyrir í flestum skoðunum voru gerðar við merkingu töflubúnaðar eða í 75% tilfella, við tengla í 67% tilfella og við lekastraumsrofvörn í 54% tilfella. Þá vekur athygli hversu víða röng gerð tengla var notuð til tengingar á hjólhýsum og húsbílum.

Sjá skýrslu Neytendastofu

TIL BAKA