Fara yfir á efnisvæði

Nöfn veitingahúsa upplýst

05.12.2007

 Úrskurðanefnd um upplýsingamál hefur kveðið upp þann úrskurð að Neytendastofu beri að veita Láru Ómarsdóttur, fréttamanni, aðgang að tölvuskrá sem inniheldur lista yfir þau veitingahús sem verðkönnun Neytendastofu beindist að í ágúst 2007.
Á listanum var auk nafna á veitingahúsum sem voru tekin til athugunar verð tiltekinna rétta á matseðlum þeirra í febrúar, mars og ágúst 2007 og útreikningur verðbreytinga milli nefndra mánaða í prósentuhlutföllum.
Úrskurðanefnd upplýsingamála telur að skjalið sé sjálfstætt skjal í stjórnsýslumáli hjá Neytendastofu og fellur því undir ákvæði upplýsingalaga nr. 50/1996. Úrskurðanefndin féllst ekki á rök Neytendastofu að hér væri um að ræða innanhúss vinnuskjal sem sé undanþegið upplýsingarétti, skv. 3. tölul. 4. gr. laga nr. 50/1996, án þess að tekin sé afstaða til þess hvort tafla af þessu tagi geti í eðli sínu talist vinnuskjal í skilningi 3. tölul. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin byggir  úrskurð sinn á því að óheimilt er að synja um aðgang að skjalinu þar sem að það inniheldur hvoru tveggja upplýsingar um endanlega niðurstöðu málsins hjá Neytendastofu og upplýsinga sem ekki verði aflað annars staðar frá, sbr. síðari málsl. 3. tölul. 4. gr. upplýsingalaga.
Neytendastofa hefur í samræmi við úrskurðinn afhent Láru Ómarsdóttur umrædd gögn.

Úrskurðinn í heild má lesa hér

Reykjavík, 5. des. 2007

 

TIL BAKA