Fara yfir á efnisvæði

Auglýsingar um -5 kr. af eldsneytisverði bannaðar

13.11.2009

Olíuverslun Íslands og N1 hafa undanfarið auglýst tilboð til viðskiptakorthafa sinna þar sem boðinn er fimm króna afsláttur af dæluverði eldsneytis til handa korthöfunum. Í tilboðinu felst hins vegar að veittur er þriggja króna afsláttur af dæluverði og söfnun punkta að verðmæti tveggja króna, Safnkortspunkta hjá N1 og vildarpunkta Icelandair hjá Olíuverslun Íslands.

Með ákvörðunum Neytendastofu nr. 29/2009 og nr. 30/2009 hefur stofnunin bannað auglýsingar fyrirtækjanna. Neytendastofa telur söfnun fríðinda ekki geta verið lagða til jafns við afslátt í krónum og því geti fyrirtækin ekki auglýst fimm króna afslátt af verði þegar dæluverð lækkar eingöngu um þrjár krónur en viðskiptavinurinn safnar punktum að verðmæti tveggja króna að auki. Neytendastofa bannaði því auglýsingarnar þar sem þær eru villandi og til þess fallnar að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti.

TIL BAKA