Fara yfir á efnisvæði

Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfestir ákvörðun Neytendastofu

10.09.2008

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði nr. 5/2008 staðfest ákvörðun Neytendastofu sem fram kom í bréfi til áfrýjanda þann 14. maí 2008.  Fallist var á það mat Neytendastofu að þeir viðskiptahættir sem kærandi lýsir í erindi sínu brjóti gegn ákvæðum 5. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins eins og ákvæðið var orðað fyrir gildistöku laga nr. 50/2008

Sjá úrskurð áfrýjunarnefndar neytendamála nr. 5/2008

TIL BAKA