Háttsemi milli fyrirtækja
Markaðssetningarlög nr. 44/2026 taka til hvers konar atvinnustarfsemi einkaaðila og opinberra aðila sem bjóða vöru eða þjónustu á markaði. Markmið þeirra er að stuðla að virkri samkeppni og góðri neytendavernd í þágu vel starfandi markaðar.
Lögunum er ekki eingöngu ætlað að vernda hagsmuni neytenda heldur einnig atvinnurekenda og almenna samfélagshagsmuni. Neytendastofa sinnir eftirliti með ákvæðum laganna en stofnun hefur heimild til að forgangsraða þeim málum sem tekin eru til meðferðar og skal stofnunin við það mat leggja áherslu á mál sem varða heildarhagsmuni neytenda. Neytendastofa tekur því sjaldan til meðferðar mál sem snúa að vernd hagsmuna atvinnurekenda.
Í markaðssetningarlögum er fjallað um góða markaðshætti sem fela í sér vernd hagsmuna neytenda og atvinnurekenda sem og almenna samfélagshagsmuni.
Ákvæðið felur hvort tveggja í sér vernd fyrir atvinnurekendur sem kaupendur í viðskiptum en einnig vernd á samkeppnismarkaði. Þannig fellur undir ákvæðið ef atvinnurekandi stundar óheiðarlega samkeppni svo sem með eftirlíkingum eða annars konar hagnýtingu á vinnu annarra og brotum gegn rétti atvinnurekenda til nafns, hönnunar og viðskiptaleyndarmála. Ákvæðið verndar atvinnurekendur einnig gegn lítillækkandi umtali keppinauta og ósanngjarnri hagnýtingu keppinauta á orðstír atvinnurekenda.
Atvinnurekendur skulu ekki viðhafa viðskiptahætti sem eru villandi eða líklegir til að hafa fjárhagsleg áhrif á aðra atvinnurekendur. Að sama skapi skulu þeir ekki viðhafa viðskiptahætti sem skaða keppinauta. Viðskiptaaðferðir geta talist villandi þótt veittar séu réttar upplýsingar ef form eða framsetning þeirra er villandi eða ef þær eru líklegar til að vera villandi. Við mat á því hvort viðskiptaaðferðir séu villandi eða skaði samkeppni ræður ekki úrslitum hvort þær hafi valdið skaða heldur nægir að viðskiptaaðferðirnar séu líklegar til þess út frá hinum almenna atvinnurekanda sem þær beinast gegn.
Ágengar eða óviðeigandi viðskiptaaðferðir gagnvart öðrum atvinnurekendum eru bannaðar. Þetta getur t.d. falist í áreitni, þvingunum, ofbeldi eða ótilhlýðilegum áhrifum.
Samanburðarauglýsingar eru auglýsingar þar sem beint eða óbeint er vísað til keppinauta eða vöru eða þjónustu sem keppinautur selur. Samanburðarauglýsingar eru leyfðar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem fram koma í markaðssetningarlögum.
Svo dæmi séu tekin mega þær ekki vera villandi og samanburðurinn verður að taka til vöru eða þjónustu sem fullnægir sömu þörfum eða er ætluð til sömu nota þ.e. að vörurnar eða þjónustan sem borin er saman sé samanburðarhæf.
Samkvæmt 20. gr. markaðssetningarlaga er atvinnurekendum óheimilt að nota auðkenni sem þeir hafa ekki rétt til að nota eða að nota eigin auðkenni þannig að hætta sé á ruglingi við auðkenni annarra. Greinin leggur því almennt bann við því að atvinnurekendur noti auðkenni sem annar á. Réttur til þessara auðkenna getur hvílt á sérlöggjöf, t.d. lögum um vörumerki, nr. 45/1997, en einskorðast ekki við slík auðkenni eingöngu. Ákvæðið felur því í sér viðbótarvernd auðkenna umfram þá vernd sem sérlög veita.
Við mat á ruglingshættu samkvæmt ákvæðinu er stuðst við ýmis sjónarmið, til að mynda:
-aldur auðkenna m.t.t. forgangsáhrifa,
-sjónlíking merkjanna,
-hvort fyrirtæki séu í sambærilegum rekstri/keppinautar,
-hvort þau beini þjónustu sinni að sama markhópi,
-hvort auðkennið innihaldi almenn orð (almenn orð veita að jafnaði ekki einkarétt),
-hvernig orð/merki eru notuð,
-hvort orð/merki lýsa starfseminni (Ef orð lýsir starfseminni nýtur það síður einkaréttar),
-þá getur góð trú og sjónarmið vörumerkjaréttar spilað hlutverk við matið, o.s.frv.
Heildarmat ræður niðurstöðunni hverju sinni.
Að leita til Neytendastofu er þó aðeins eitt af þeim úrræðum sem rétthafi auðkennis getur nýtt sér. Önnur úrræði geta til dæmis verið höfðun dómsmáls eða fljótvirkari úrræði eins og lögbann svo dæmi séu tekin.
Rétt er að vekja athygli á að Neytendastofu er tryggt vítt svigrúm við mat á því hvort taka beri mál til rannsóknar og samkvæmt lögum ber stofnuninni að leggja áherslu á mál sem brýnust þykja fyrir heildarhagsmuni neytenda. Þá getur sá sem beinir kvörtun til Neytendastofu ekki talist aðili að máli sem stofnunin kann að taka til meðferðar. Mál er lúta að viðbótarvernd auðkenna teljast almennt séð ekki til mála sem hafa mikla þýðingu fyrir neytendur enda snerta slík mál iðulega hagsmuni neytenda með takmörkuðum hætti. Slík mál eru því almennt séð ekki tekin til efnislegrar meðferðar hjá stofnuninni nema aðstæður séu með þeim hætti að þær varði heildarhagsmuni neytenda.