Fara yfir á efnisvæði

Öryggisinnköllun bifreiða

Framleiðendur og umboðsaðilar þeirra ber að tilkynna stjórnvöldum um innköllun sem getur reynst nauðsynleg til að tryggja öryggi ökutækjanna. Mikilvægt er að eigendur ökutækja færi ökutæki sín til þjónustuaðila hér á landi sem hefur umboð til að gera viðeigandi lagfæringar. Í því skyni að auðvelda neytendum og bifreiðaeigendum að geta kannað á fljótvirkan hátt hvort bifreið þeirra hefur verið innkölluð hefur Neytendastofa tekið í notkun rafræna innköllunargátt fyrir bifreiðar. Allar bifreiðar bera einkvæmt einkennisnúmer - VIN númer - sem er kennitala bifreiðarinnar og er skráð í skráningarskírteini auk öktækjanúmer sem er skráð í ökutækjaskrá Íslands. Neytendur slá því inn VIN númer eða númer öktuækisins og ef innköllun hefur verið gerð er viðkomandi bent á að leita til þjónustuaðila. 

Gáttin er opin til notkunar öllum ábyrgðaraðilum sem selja og markaðssetja bifreiðar hér á landi. Til að slá inn númer og kanna hvort í gildi er innköllun sem þarf að  farið inn á Öryggisinnköllun bifreiða með því á smella á þennan tengil.

Eftirtaldir aðilar hafa fært inn í þessa rafrænu öryggisgátt fyrir öryggisinnköllun bifreiða og munu færa þar inn reglulega upplýsingar um hvort innköllun hafi verið tilkynnt frá framleiðanda bifreiðarinnar: Hekla hf., Bílabúð Benna, BL á Íslandi, Brimborg, Hyundai á Íslandi ehf. en á næstunni bætast við Askja, Ísband og Suzuki.

Athugið!: Neytendstofa bendir á að ef bifreiðar hafa verið fluttar inn sjálfstætt eða sem hluti af búslóð af öðrum markaðssvæðum þá verða neytendur að leita eftir öðrum leiðum hvort innköllun hafi átt sér stað á því markaðssvæði þaðan sem bifreiðin var flutt inn frá. Neytendur geta leitað til sinna umboðsaðila með spurningar varðandi öll mál er varða innköllun bifreiða.  

Þau sem eiga bifreiðar sem fluttar eru til landsins án aðkomu íslenskra bifreiðaumboða er bent á að leita sér upplýsinga um mögulegar innkallanir hjá viðkomandi umboðum eða með öðrum hætti. Hér má nálgast bandaríska innkallanagátt sem gildir fyrir alla bíla sem framleiddir eru þarlendis eða skráðir inn i kerfi bandarísku NHTSA stofunarinnar.  Fyrir bílategundir sem hafa ekki íslenska umboðsmenn þurfa eigendur að kanna sjálfir mögulegar innkallanir sem kunna að gilda fyrir téðar bifreiðar.

TIL BAKA