Fréttasafn
Fréttir eftir mánuðum
29.9.2020![Volkswagen vörumerkið](/library/Images/Logo/l%c3%b3g%c3%b3VW.jpg?proc=Newslist)
Hekla hf innkallar 14 VW Crafter bifreiðar
![Volkswagen vörumerkið](/library/Images/Logo/l%c3%b3g%c3%b3VW.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi 14 VW Crafter bifreiðar af árgerð 2018. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að rúða í afturhurð gæti losnað.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Meira25.9.2020![Mynd með frétt](/library/Images/Innkallanir/Gr%c3%admur_kranb%c3%ba%c3%b0in.JPG?proc=Newslist)
3 M andlitsgrímur innkallaðar
Neytendastofa vekur athygli á innköllun á andlitsgrímum sem hafa meðal annars verið seldar í verslunum Krambúðarinnar, Nettó, Kjörbúðarinnar og Iceland. Ekki er vitað hver framleiðandi vörunnar er en fyrir ofan strikamerki á umbúðum stendur „3 M 100 maskar“. Framan á umbúðum stendur jafnframt „Disposable face masks two ply 100 pieces“.
Meira18.9.2020![Lógó Hyundai](/library/Images/Logo/2015hyundai.JPG?proc=Newslist)
Innköllun á 578 Hyundai Santa Fe CM
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL Hyundai á Íslandi um að innkalla þurfi 578 Hyundai undirtegund Santa Fe CM bifreiðar af árgerð 2005 - 2009. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að skammhlaup getur myndast í skriðvarnarkerfi bifreiðarinnar.
Meira17.9.2020![Lógó BL](/library/Images/Logo/l%c3%b3g%c3%b3%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=Newslist)
BL innkallar Renault Espace
![Lógó BL](/library/Images/Logo/l%c3%b3g%c3%b3%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi 13 Renault Espace V bifreiðar af árgerð 2017 - 2019. Ástæða innköllunarinnar er að skoða þarf spoiler á afturhlera á umræddum bifreiðum.
Meira16.9.2020![Mynd með frétt](/library/Images/Maelifraedi/Gull%20l%c3%b3%c3%b0.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofa tekur þátt í mælifræðisamstarfi ríkja á norðurslóðum.
![Mynd með frétt](/library/Images/Maelifraedi/Gull%20l%c3%b3%c3%b0.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofa tekur nú þátt í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltslanda í mælifræði. Samstarfshópurinn heitir EMN (European Metrology Network) og er hlutverk hans að efla samstarf á milli landanna með því að miðla hugmyndum og þekkingu.
Meira15.9.2020![Andlitsgrímur hætt sölu](/library/Images/Innkallanir/Andlitsgr%c3%admur_Rekstarv%c3%b6rur.jpg?proc=Newslist)
Rekstrarvörur taka andlitsgrímur úr sölu
![Andlitsgrímur hætt sölu](/library/Images/Innkallanir/Andlitsgr%c3%admur_Rekstarv%c3%b6rur.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Rekstrarvörum um að hætt hafi verið sölu á einnota andlitsgrímum. Framleiðandinn er Zhongshan Zhiteng clothing co. og heiti vörunnar er KN95.
Meira15.9.2020
Skilmálabreytingar Reebok Fitness óréttmætar
Neytendastofu bárust kvartanir yfir skilmálabreytingum sem Reebok Fitness gerði þegar líkamsræktarstöðvar þurftu að loka tímabundið vegna samkomutakmarkana. Breytingin fólst í því að í stað þess að segja upp ótímabundinni áskrift rafrænt á vefsíðu Reebok Fitness, eins og áður hafði verið, þurftu neytendur að mæta á skrifstofu félagsins á tilteknum tíma dags.
Meira14.9.2020
Geymslum gert að birta upplýsingar á heimasíðu
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Geymslum ehf. vegna tveggja vefsíða fyrirtækisins, geymslur.is og geymsla24.is.
Meira14.9.2020
Askja innkallar Mercedes-Benz X-Class
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 20 Mercedes-Benz X-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að Active Brake Assist kerfið virki ekki sem skyldi.
Meira11.9.2020![Lógó BL](/library/Images/Logo/l%c3%b3g%c3%b3%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=Newslist)
BL innkallar 160 Discovery
![Lógó BL](/library/Images/Logo/l%c3%b3g%c3%b3%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi 160 Land Rover Discovery af árgerð 2017-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að Þegar afturhurðum er lokað er hætta á að þær lokist ekki tryggilega.
Meira9.9.2020![Bíumbíum innköllun peysa](/library/Images/Innkallanir/L%c3%b6ng_Bond_BiumBium.jpg?proc=Newslist)
Bíumbíum innkallar hettupeysur
![Bíumbíum innköllun peysa](/library/Images/Innkallanir/L%c3%b6ng_Bond_BiumBium.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofa vill benda á innköllun Bíumbíum á How to kiss a frog hettupeysu sem fengist hefur í versluninni. Hættan felst í því að bönd í hettum eða í hálsmáli geta valdið hættu á kyrkingu. Um er að ræða vöruna Gola Hoodie Dress in Powder velvet, vörunúmer AW1930-2Y.
Meira8.9.2020![Mynd með frétt](/library/Images/Innkallanir/andlitsmaski.JPG?proc=Newslist)
Front-X tekur andlitsgrímur úr sölu
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Front-X um að hætt hafi verið sölu á einnota andlitsgrímum. Framleiðandinn er Wuxi Gery Energy Conservation Technology og á kassanum stendur “Disposable Protective Mask”. Grímurnar voru seldar á vefsíðu www.frontx.is.
Meira7.9.2020
Fyrra verð á tilboðsvörum Carson
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart bílasölunni Carson ehf., vegna kynningar fyrirtækisins á lækkuðu verði.
Meira4.9.2020![Mynd með frétt](/library/Images/Maelifraedi/%c3%ber%c3%bdstim%c3%a6lir%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=Newslist)
Kvarðanir þrýstimæla liggja niðri
![Mynd með frétt](/library/Images/Maelifraedi/%c3%ber%c3%bdstim%c3%a6lir%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=Newslist)
Meðal þeirra kvarðana sem boðið er upp á hjá kvörðunarþjónustu Neytendastofu eru kvarðanir þrýstimæla. Kvörðunargeta stofnunarinnar er allt upp í 100 bar þrýsting og fást kvarðaðir bæði stafrænir og hliðrænir mælar. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir nýta sér þessa þjónustu og koma þau úr ýmsum geirum íslensks iðnaðar og þjónustu.
Meira