Fréttasafn
Fréttir og tilkynningar
6.1.2011
Áfrýjunarnefnd staðfestir ákvörðun Neytendastofu vegna bílasamnings SP-Fjármögnunar
Á síðasta ári tók Neytendastofa ákvörðun í máli þar sem kvartað var yfir bílasamningi SP-Fjármögnunar. Kvörtunin var í nokkrum liðum og var niðurstaða Neytendastofu var sú að SP hafi brotið gegn lögum um neytendalán og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu
4.1.2011
Áfrýjunarnefnd staðfestir ákvörðun Neytendastofu um bílasamning Lýsingar
Með ákvörðun nr. 34/2010 komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að samningsskilmálar á bílasamningi hjá Lýsingu brytu að nokkru leyti gegn ákvæðum laga um neytendalán og laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
4.1.2011![Mynd með frétt](/library/Images/Maelifraedi/DCP_0298.jpg?proc=Newslist)
Vigtarmannanámskeið í janúar 2011
![Mynd með frétt](/library/Images/Maelifraedi/DCP_0298.jpg?proc=Newslist)
Námskeiðum til löggildingar vigtarmanna og til endurlöggildingar vigtarmanna verða haldin í Reykjavík í 17.-19. janúar og 24. janúar næstkomandi hvort um sig.
4.1.2011
Dekkjaverkstæði þurfa að hafa verðskrár sýnilegar
Starfsmenn Neytendastofu könnuðu í byrjun október og aftur í nóvember hvort verðskrár væru til staðar hjá dekkjaverkstæðum og hvort þær væru aðgengilegar viðskiptavinum
3.1.2011
Verðmerkingum á vörum bensínstöðva enn ábótavant
Neytendastofa kannaði hvort búið væri að bæta verðmerkingar á 15 bensínstöðvum sem ekki höfðu merkt vörur sínar sem skyldi í fyrri könnun sem gerð var í ágúst.
29.12.2010
Hátíðar Appelsín Vífilfells
Ölgerð Egils Skallagrímssonar kvartaði yfir markaðssetningu og kynningu Vífilfells á Hátíðar Appelsíni. Kvörtunin snéri bæði að heiti vörunnar og umbúðum hennar sem og auglýsingum Vífilfells.
29.12.2010
OR heimilt að nota lénið orkusala.is
Orkusalan kvartaði við Neytendastofu yfir skráningu og notkun OR á léninu orkusala.is þar sem það væri til þess fallið að valda ruglingi milli fyrirtækjanna.
28.12.2010
Kvörtun Arion banka vegna upplýsinga á vefsíðu Sparnaðar
Neytendastofu barst kvörtun frá Arion banka þar sem gerðar voru athugasemdir við upplýsingar á vefsíðu Sparnaðar um viðbótarlífeyrissparnað.
28.12.2010
Kvörtun Arion banka vegna upplýsinga á vefsíðu Allianz
Arion banki kvartaði við Neytendastofu yfir upplýsingum á vefsíðu Allianz um viðbótarlífeyrissparnað. Kvörtunin var fjórþætt
28.12.2010
Fréttabréf evrópskra neytendayfirvalda
Neytendastofa tekur þátt í samstarfi evrópskra eftirlitsstofnana á sviði neytendamála. Á vegum þess hefur nú verið gefið út fréttabréf þar sem
23.12.2010
Sýningargluggar illa eða ekki verðmerktir
Starfsmenn Neytendastofu skoðuðu nýverið verðmerkingar í verslunarmiðstöðvunum Kringlunni og Smáralind. Farið var í 186 verslanir.
22.12.2010![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/snu%c3%b0band.jpg?proc=Newslist)
Snuðkeðja getur verið hættuleg
![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/snu%c3%b0band.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist ábending frá eftirlitsstofnun í Danmörku varðandi keðjur í snuð. Stofnunin lét prófa 28 snuðkeðjur sem markaðssett hafa verið í Danmörk.
21.12.2010
Vefsíðan fabriksoutlet.com
Neytendastofu hefur borist ábending sænskra neytendayfirvalda við vefverslunina Fabriksoutlet.com
16.12.2010
Bönd á blöðrum, hætta fyrir ung börn
Neytendastofu hefur borist ábending um barn sem var hætt komið vegna þess blaðra hafði verið bundin við rúm þess og barnið náði að vefja bandið utan um hálsinn á sér.
14.12.2010![Mynd með frétt](/library/Images/Almennt/2010-w44_5-2f.jpg?proc=Newslist)
Innköllun á seglaleikfangi hjá Tiger
![Mynd með frétt](/library/Images/Almennt/2010-w44_5-2f.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá versluninni Tiger að innkalla þurfi af neytendum dýrapúsl með segli, tvö dýr saman í hvítu tréboxi.
10.12.2010![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/latib%c3%a6r1.jpg?proc=Newslist)
Sölubann á hlífðarhjálma
![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/latib%c3%a6r1.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofa hefur lagt bann á sölu hlífðarhjálma sem seldir eru undir vöruheiti Latabæjar. Hjálmarnir sem eru af gerðinni ATLAS eru framleiddir í bláum lit með mynd af íþróttaálfinum og bleikum lit með mynd af Sollu stirðu
9.12.2010![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/0-3lit%20heimasida.jpg?proc=Newslist)
Leikföng: 12 góð ráð fyrir Jólin
![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/0-3lit%20heimasida.jpg?proc=Newslist)
Leikföng eru vinsælar jólagjafir handa börnum enda eru þau hluti af þroskaferli þeirra. Til þess að leikur barna geti orðið hvað ánægjulegastur og öryggi þeirra tryggt er mikilvægt að neytendur hafi í
1.12.2010![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/tr%c3%a9b%c3%adll.jpg?proc=Newslist)
Hættuleg leikföng yfirlit Neytendastofu vegna viku. 20- 29
![Mynd með frétt](/library/Images/oryggi-voru-og-markadsgaesla/tr%c3%a9b%c3%adll.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofa telur ástæðu til að vekja athygli neytenda og innflytjenda á eftirtöldum tilkynningum um hættulegar vörur þrátt fyrir að þær hafi ekki verið markaðssettar á Íslandi svo vitað sé.
30.11.2010![Mynd með frétt](/library/Images/Almennt/Bernhard-logo.jpg?proc=Newslist)
Bernhard ehf. innkallar Honda Legend
![Mynd með frétt](/library/Images/Almennt/Bernhard-logo.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bernhard ehf. á Íslandi um að innkalla þurfi bifreiðar af gerðinni Honda Legend.
29.11.2010
Ákvörðun Neytendastofu staðfest
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði í máli nr. 15/2010 staðfest ákvörðun Neytendastofu um að RT veitingar ehf. greiði stjórnvaldssekt.
29.11.2010
Áfrýjunarnefnd neytendamála vísar frá kæru Express ferða
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði í máli nr. 14/2010 vísað frá kæru Express ferða ehf.
26.11.2010
Sohosól bannað að nota heitið Smarter
Neytendastofu barst erindi frá sólbaðsstofunni Smart þar sem kvartað var yfir notkun Sohosólar á heitinu Smarter í auglýsingum og utan á húsnæði sólbaðsstofunnar.
22.11.2010![Mynd með frétt](/library/Images/Almennt/lexusl%c3%b3g%c3%b3.jpg?proc=Newslist)
Toyota innkallar Lexus bifreiðar
![Mynd með frétt](/library/Images/Almennt/lexusl%c3%b3g%c3%b3.jpg?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 199 bifreiðar sem væntanlega eru í umferð hér á landi.
15.11.2010
Lénið logsatt.is
Neytendastofa hefur bannað Karli Jónssyni notkun á léninu logsatt.is. Stofnuninni barst erindi frá lögfræðistofunni Lögsátt þar sem kvartað var yfir skráningu á léninu logsatt.is.
9.11.2010
Ákvörðun Neytendastofu felld úr gildi
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Neytendastofu nr. 30/2010
Page 69 of 92