Fréttasafn
Fréttir og tilkynningar
19.8.2011
Fyrsta reglugerðin um rafrænar undirskriftir tekur gildi
Neytendastofa hefur eftirlit með framkvæmd laga nr. 28/2001, um rafrænar undirskriftir. Fyrsta reglugerð um nánari framkvæmd laganna hefur nú verið staðfest, sbr. reglugerð nr. 780/211, um rafrænar undirskriftir.
17.8.2011
Ófullnægjandi verðmerkingar í miðborg Reykjavíkur

Neytendastofa kannaði í júlí ástand verðmerkinga í sérvöruverslunum í miðborginni. Farið var í 202 verslanir og reyndust 136 þeirra með verðmerkingar í ólagi, eða um 67% sem er langt frá því sem telst viðunandi.
10.8.2011
Réttindi neytenda
Drög að tilskipun um réttindi neytenda hafa verið til meðferðar á vettvangi ESB í alls 32 mánuði en þann 15. júní s.l. var samstöðu náð meðal aðildarríkja ESB. Nýja tilskipunin mun einfalda reglur um réttindi neytenda einkum á sviði netviðskipta á milli EES-ríkjanna.
2.8.2011
Fréttabréf evrópskra eftirlitsstofnana á sviði neytendamála
Neytendastofa tekur þátt í samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd (CPC-nefndin). Á vegum þess hefur verið gefið út fréttabréf
29.7.2011
Löggildingareftirlit voga
Neytendastofa fór á 58 staði (matvöruverslanir, pósthús, fiskbúðir og framleiðendur) á höfuðborgarsvæðinu þar sem vigtun fór fram til að skoða vogirnar.
26.7.2011
Eftirlit með POS vogarkerfum búðarkassa
Neytendastofa gerði átak í eftirliti með POS vogarkerfum búðarkassa en það eru vogir sem eru sambyggðar afgreiðslukerfi, með strikmerkjalestri, kortalesurum, hugbúnað fyrir verðútreikning og fleira
22.7.2011
Vörur úr gulli, silfri, platínu og palladíum
Fulltrúar Neytendastofu hafa í sumar verið að kanna ástandi verðmerkinga og ábyrgðastimpla vegna sölu skartgripa úr eðalmálmum á höfuðborgarsvæðinu.
21.7.2011
Arctic Rafting gert að afskrá heitið Bakkaflöt sem leitarorð úr símaskránni ja.is.
Ferðaþjónustan Bakkaflöt leitaði til Neytendastofu með kvörtun yfir því að þegar heitið Bakkaflöt er slegið inn hjá símaskránni ja.is komi upp bæði Bakkaflöt ferðaþjónusta
19.7.2011
Hagkaup gert að birta prósentuhlutfall afsláttar
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um auglýsingar Hagkaups á Tax Free dögum í tilefni ábendinga og fyrirspurna frá neytendum.
19.7.2011
Ákvörðun Neytendastofu vegna Tax Free auglýsinga Húsasmiðjunnar
Neytendastofu barst kvörtun frá Byko vegna Tax Free auglýsinga Húsasmiðjunnar þar sem Byko taldi þær brjóta gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
19.7.2011
Neytendastofa sektar hárgreiðslu- og snyrtistofur
Neytendastofa kannaði ástand verðmerkinga hjá hársnyrtistofum og snyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu.
Margar af þeim stofum sem gerðar voru athugasemdir við bættu merkingar sínar
18.7.2011
Neytendastofa sektar verslanir í Smáralind og Kringlunni
Neytendastofa kannaði ástand verðmerkinga hjá verslunum í Kringlunni og Smáralind. Margar af þeim verslunum sem gerðar voru athugasemdir við bættu merkingar sínar en nokkrar þeirra fóru ekki að tilmælum Neytendastofu.
15.7.2011
Toyota á Íslandi innkallar Lexus

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi varðandi innköllun á Lexus RX400h Hybrid.
14.7.2011
Innköllun á eldspýtum

Neytendastofa vekur athygli á innköllun Aðfanga á eldspýtum sem þeir fluttu inn og voru til sölu í Bónus og 10-11 á tímabilinu frá 13. maí 2010-23. maí 2011.
13.7.2011
Ákvörðun Neytendastofu vegna viðskiptahátta við lánveitingu
Neytendastofu barst erindi vegna viðskiptahátta Gildis lífeyrissjóðs við lánveitingu. Erindið var tvíþætt þar sem annars vegar var kvartað yfir því að skv. skilmálum lánsins skyldu afborganir þess tengdar vísitölu neysluverðs en í framkvæmd hafi það verið tengt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar
13.7.2011
Skilmálar og skráningarferli vefsíðunnar Tónlist.is
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um skilmála og skráningarferli á vefsíðunni Tónlist.is í tilefni fjölda ábendinga og fyrirspurna frá neytendum.
11.7.2011
Fjallakofinn innkallar GRIGRI2

Neytendastofa vekur athygli á innköllun verslunarinnar Fjallakofans á klifurbúnaðinum GRIGRI2 af gerðinni Petz
5.7.2011
Bernhard ehf. innkallar Honda mótorhjól

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bernhard ehf. á Íslandi varðandi innköllun á Honda VT750C mótorhjólum.
4.7.2011
Tiger innkallar ferðamillistykki

Neytendastofa vekur athygli á innköllun Tiger á ferðamillistykkjum (rejseadapter) sem seld voru í versluninni á tímabilinu febrúar til apríl 2011.
1.7.2011
Brimborg innkallar Citroen C4 Picasso

Neytendastofa vekur athygli á innköllun frá bílaumboðinu Brimborg á Citroen bifreiðum af gerðinni C4 Picasso.
1.7.2011.png?proc=Newslist)
Heimilistæki innkalla Philips ferðahárblásara
.png?proc=Newslist)
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heimilistækjum ehf. um að innkallaðir hafa verið Philips ferðahárblásarar með vörunúmerið HP4940 og framleiddir voru í ágúst 2008 til júní 2010.
30.6.2011
Útilíf innkallar UVEX skíðahjálma

Neytendastofa vekur athygli á innköllun Útilífs á UVEX FUNRIDE skíðahjálmum.
29.6.2011
Brimborg innkallar Volvo XC90

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg á Íslandi varðandi innköllun á Volvo bifreiðum af gerðinni XC90
28.6.2011
Framleiðslugalli í Hummer H3

Neytendastofa vekur athygli á innköllun frá General Motors framleiðanda Hummer H3. Um er að ræða bifreiðar framleiddar á árunum milli 2006 og 2010,
27.6.2011
Merkingar á sjálfsölum
Neytendastofa hefur í kjölfar ábendinga kannað merkingar á sjálfsölum SOS-Barnaþorpa og SÁÁ þar sem sala fer fram á leikföngum. Flest þessara leikfanga eru það smá að þau henta ekki börnum yngri en 3ja ára.
Page 67 of 93